Ævintýrið um Augastein

Fimmtudaginn 6. desember fórum við á sjá leikritið Ævintýrið um Augastein á Klifi. Daginn eftir fengu nemendur það verkefni að skrifa frétt um atburðin eins og alvöru blaðamenn gera. Þeir fengu nokkur stikkorð sem tekin voru úr ferðinni og áttu að skrifa út frá þeim. Mörgum tókst ágætlega upp og gátu rakið atburðarásina nokkurn veginn í samhengi eins og sjá má hér að neðan. Myndin er tekin af töflunni og sýna stikkorðinn sem krakkarnir fengu. Patrycja skrifaði sína frétt á pólsku. Fréttin hennar og Helga voru valdar á forsíðuna en fréttir frá öðrum blaðamönnum eru á þessari síðu.

 
 

Leikritið um Augastein. Felix Bergsson leikur

Við fórum í gær með rútu og vorum 15 mínútur á leiðinni og þetta fjallaði um 13 jólasveina og eitt lítið barn og grílu og jólaköttinn og þetta ver mjög skemmtilegt leikrit og findið og það var hangikjöt.

Og í leikritinu voru Stekkjarstaur, Giljagaur, Stúfur, Hurðarskellir, Gáttaþefur, Kertasníkir og allir hinir jólasveinarnir.

Og það var kertaljós, kústur og gærur og allir eða ég veit það ekki. En allavega ´ég skemmti mér vel og leikarinn var í gömlum fötum.

 

Fréttina skrifaði Konni

 

Fimmtudagur 6. des

Leikritið Augassteinn var haldið á Klifi í Ólafsvík. Og þar var stórt leiksvið, á sviðinu hékk hangikjöt og harðfiskur. Þetta var mjög stór salur og þangað komust margir fyrir. Þetta var jólaleikrit.

Fréttina skrifaði Alma Björk

 

Leikritið á Klifi

Á fimmtudaginn fórum við bekkurinn á leikritið Augastein. Það var hann Felix Bergsson sem var einleikari í þessu leikriti. Þetta var í ca. klukkutíma. Hann átti hrafn og búð. Hann talaði um alla jólasveinana og þeir heita Stekkjastaur, Giljagaur, Stúfur, Hurðaskellir, Gluggagægir, Bjúgnakrækir og Kertasníkir og svo Skyrgámur og svo framvegis. Við þurftum að fara með rútu til að fara á leikritið á Klifi. Við lögðum af stað frá skólanum kl. 8:45

 

Fréttina skrifaði Lilja Sæbjörg

 

Ég fór með rútunni inn í félagsheimili að horfa á leikrit. Felix Bergsson var í einþáttungi að gera leikrit og segja sögur. Fyrsta sagan var um jólasveina hvað þeir voru hrekkjóttir. Stekkjastaur og Giljagaur og Litli Stúfurinn og líka Þvörusleikir.

 

Fréttina skrifaði Kristófer.

 

Myndir 1              Myndir 2              Til baka